29.08.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ungur ÍR-ingur semur við Herfölge (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Arnarsson, átján ára leikmaður úr ÍR, hefur gert árssmning við Herfölge frá Danmörku en hann mun æfa með varaliði félagsins.
Undanfarin ár hafa áhugasamir ÍR-ingar verið með styrktarsjóð með það að markmiði að senda unga ÍR inga úr 2. fl. karla til æfinga og keppni á erlendri grund.
Halldór og Hrannar Karlsson fóru um verslunarmannahelgina til Herfölge og dvöldust þar í um vikutíma. Það er skemmst frá því að segja að þeim gekk vel og svo vel að Halldóri var boðið að vera aðeins lengur og spila einn leik í viðbót.
Í kjölfarið bauð Herfölge honum samning en félagið er í næstefstu deild í Danmörku.
Halldór vann sér fast sæti í byrjunarliði í 2. flokki ÍR í fyrra og var einnig fastamaður í ár en áður átti hann ekki fast sæti í byrjunarliði yngri flokkum ÍR og því er um hálfgert öskubuskuævintýri að ræða.
Sigurður Þórir Þorsteinsson þjálfaði hann í 2. flokki á þessu tímabili og hann ásamt Ásgeiri heitnum Elíassyni einnig í fyrra en Halldór var í æfingahópi meistaraflokks í ár þar sem Guðlaugur Baldursson þjálfar og Kristján Halldórsson er aðstoðarþjálfari.