29.08.08 - 13:33
Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Sverrisson tekur við Fylki (Staðfest)

Sverrir eftir leik með Fylki fyrir nokkrum árum er hann lék enn með liðinu.

Mynd: Elvar Geir Magnússon

Sverrir Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari Landsbankadeildarliðs Fylkis út tímabilið en hann tekur við starfinu af Leifi Garðarssyni sem var rekinn frá félaginu í gær eins og Jón Sveinsson aðstoðarmaður hans. Þetta staðfesti Hörður Antonsson formaður meistaraflokksráðs Fylkis í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Ekki er rétt sem áður hefur komið fram að Páll Einarsson stýri liðinu með Sverri og óljóst er hver verður honum til aðstoðar en það mun ráðast á næstu dögum. Sverrir tekur við liðinu út tímabilið og í kjölfarið munu menn setjast niður og ræða framhaldið.
Þetta er í annað sinn sem Sverrir tekur við þjálfun Fylkis á þessum tímapunkti því hann tók einnig við liðinu af Þorláki Árnasyni 1. september 2005 og stýrði því út tímabilið með Jón sér við hlið en Jón er nú hættur hjá félaginu eftir brottreksturinn í gær. Sverirr er 39 ára gamall og var leikmaður Fylkis í fjögur tímabil á árunum 2000-2003
Fyrsti leikur Sverris við stjórnvölinn hjá Fylki verður á sunnudaginn þegar liðið mætir Fjölni á Laugardalsvelli í undanúrslitum bikarsins. Hann mun fá það verkefni að bjarga stöðu liðsins í Landsbankadeildinni þar sem Fylkir er í þriðja neðsta sæti með 16 stig, fjórum stigum meira en HK sem er í næst neðsta sæti með 12 stig en á leik til góða.