29.08.10 - 19:00
Þórður Már Sigfússon
Gunnar Heiðar til Fredrikstad (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gengið til liðs við norska 1. deildarliðið Fredrikstad frá Esbjerg á lánssamningi.
Heimasíða Fredrikstad greinir frá því að Gunnar verði á láni hjá félaginu út keppnistímabilið en hann hefur verið úti í kuldanum hjá Esbjerg síðastliðið ár.
Gunnar, sem mun spila í treyju númer 11 hjá Fredrikstad, var til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu Charlton í sumar án þess að verða boðinn samningur.
Fredrikstad á í harðri baráttu um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en liðið er sem stendur í öðru sæti deildarinnar, með 38 stig að loknum 20 umferðum, stigi á eftir Sogndal og einu stigi á undan Ranheim sem situr í þriðja sætinu.

Heimild: Heimasíða Fredrikstad