29.09.08 - 17:30
Hafliði Breiðfjörð
Leifur Garðarsson tekur við Víkingi R. (Staðfest)

Leifur í Víkinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leifur í Víkinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leifur Garðarsson hefur verið ráðinn þjálfari Víkings R. en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Leifur tekur við starfinu af Jesper Tollefsen sem hætti með liðið síðastliðinn föstudag.
Undir stjórn Jespers endaði Víkingur í fimmta sæti í fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili.
Leifur hætti sem þjálfari Fylkis í lok ágúst en hann hafði stýrt Árbæjarliðinu frá því haustið 2005. Áður var Leifur aðstoðarþjálfari hjá FH.
Viðtal við Leif mun birtast hér á Fótbolta.net síðar í dag.