29.10.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Freddie Ljungberg til Seattle Sounders (Staðfest)

Freddie Ljungberg.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson

Freddie Ljungberg.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Svíinn Freddie Ljungberg er genginn í raðir bandaríska MLS liðsins Seattle Sounders. Ljungberg sem er fyrrverandi leikmaður Arsenal hefur verið samningslaus síðan samningi hans við West Ham var rift í ágúst en hann hafði áður hætt með landsliði Svíþjóðar í júní.
Hann gengur nú til liðs við nýjasta lið bandarísku MLS deildarinnar sem hefst að nýju í mars á næsta ári. Hann er fenginn inn á sömu reglu og David Beckham leikmaður LA Galaxy þegar hann kom frá Real Madrid.
,,Við leituðum vel að toppleikmanni sem myndi henta anda liðsins,\" sagði Joe Roth eigandi Sounders.
,,Í Freddie höfum við fundið hann. Leikmann sem hefur sannað sig hjá Arsenal og sem fyrirliði sænska landsliðsins, Freddie er spennandi, skapandi leikmaður sem við þurfum og við erum vissir um að stuðningsmenn Seattle eru ánægðir.\"

Heimild: Reuters