Fotbolti.net
29.11.08 - 19:21
Magnús Már Einarsson

Atli Heimisson til Asker (Staðfest)

Atli Heimisson til Asker (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Heimisson framherji ÍBV hefur gert þriggja ára samning við norska 2.deildarliðið Asker en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Atli, sem var valinn bestur í 1.deildinni í sumar, æfði með Asker á dögunum og skoðaði aðstæður hjá félaginu. Hann mun núna halda utan í byrjun janúar og hefja æfingar með norska liðinu.

Hann fór einnig til Haugasund á reynslu fyrr í mánuðinum og þótti standa sig vel þar en þjálfaraskipti urðu hjá liðinu daginn eftir að Atli hélt heim og því varð ekkert úr því að hann færi þangað.

Þessi 21 árs gamli framherji átti frábæra leiktíð með ÍBV í 1. deildinni í sumar og varð næstmarkahæstur í deildinni en hann kom til liðsins frá Aftureldingu í fyrrasumar.

Atli er annar íslenski leikmaðurinn sem gengur til liðs við Asker í mánuðinum en Andri Steinn Birgisson leikmaður Grindvíkinga hefur einnig samið við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.