Fotbolti.net
30.01.24 - 15:25
Elvar Geir Magnússon

Angelino til Roma (Staðfest)

Angelino.

Angelino.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur fengið vinstri bakvörðinn Angelino frá RB Leipzig en þessi 27 ára Spánverji hefur verið á láni hjá Galatasaray.

Hann lenti í Ítalíu í gær til að gangast undir læknisskoðun.
Roma hefur fengið Angelino á sex mánaða lánssamningi með klásúlu um möguleg kaup. Félögin gera með sér heiðursmannasamkomulag um að Roma kaupi hann ef félagið nær Meistaradeildarsæti.

Fyrri hluta tímabilsins skoraði Angelino eitt mark og átti eina stoðsendingu í nítján leikjum fyrir Galatasaray.

Daniele De Rossi var ráðinn til Roma eftir að Jose Mourinho var rekinn en liðið mætir Cagliari þann 5. febrúar. Roma er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.