30.03.12 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Þórir Guðnason í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR hefur fengið markvörðinn Þóri Guðnason til liðs við sig frá Haukum en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Róbert Örn Óskarsson varði mark ÍR í fyrra en hann gekk til liðs við FH síðastliðið haust. Magnús Karl Pétursson kom í kjölfarið til ÍR frá Stjörnunni en hann ákvað á dögunum að leggja hanskana á hilluna.

Hinn ungi Brynjar Örn Sigurðsson hefur því varið mark í undanförnum leikjum í Lengjubikarnum en hann og Þórir munu nú keppa um markvarðarstöðuna hjá liðinu.
Þórir er 22 ára gamall en hann er uppalinn hjá Haukum og hefur verið varamarkvörður liðsins undanfarin ár.
Sumarið 2010 var Þórir í láni hjá Hetti þar sem hann spilaði þrettán leiki í annarri deildinni.