Fotbolti.net
30.03.12 - 15:58
Magnús Már Einarsson

Skúli Jón til Elfsborg (Staðfest)

Skúli á fréttamannafundinum í dag.

Skúli á fréttamannafundinum í dag.

Canon

Mynd: Total Football

Sænska félagið Elfsborg hefur keypt varnarmanninn Skúla Jón Friðgeirsson frá KR en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið á fréttamannafundi í dag.
Í gær leit út fyrir að Skúli Jón væri á leið til Sogndal í Noregi en eftir að Skúli Jón hafnaði liðinu samþykkti KR tilboð frá Elfsburg og Skúli endaði á að semja við þá.

,,Við erum gríðarlega ánægðir með að geta krækt í einn af mest spennandi leikmönnunum á Íslandi,\" sagði Stefan Andreasson yfirmaður íþróttamála hjá Elfsborg.

Elfsborg endaði í þriðja sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið mætir Djurgarden í fyrstu umferðinni á morgun. Skúli verður ekki með þar en hann mætir á sína fyrstu æfingu í næstu viku.

Skúli Jón var lykilmaður í vörn KR þegar liðið var Íslands og bikarmeistari á síðasta tímabili. Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur samtals skorað fjögur mörk í 117 deildar og bikarleikjum síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2005.

Að auki á Skúli fjóra A-landsleiki að baki sem og leiki með öllum yngri landsliðum Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.