Bo Svensson hefur verið ráðinn sem nýr stjóri danska stórliðsins FC Kaupmannahöfn og skrifaði hann undir fimm ára samning við félagið.
Hann tekur við af Jakob Neestrup sem var látinn taka poka sinn í gær eftir dapurt gengi liðsins. Svensson var síðast stjóri Union Berlin árið 2024, en þar áður hafði hann stýrt Mainz.
Kristoffer Wichmann verður hægri hönd Svensson en þeir störfuðu saman hjá Union Berlin.

Það má með sanni segja að tímabil FCK hafi verið martraðarkennt. Titilvörnin hefur gengið herfilega og situr liðið nú aðeins sex stigum frá fallsæti eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum tvískiptingarinnar.
Félagið hefur verið að taka til hjá sér á undanfarið en Sune Smith-Nielsen, sem gengdi starfi yfirmanni fótboltamála, var látinn fara í síðasta mánuði.
Hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason hefur fengið tækifærið á tímabilinu og verið einn ljósasti punktur liðsins. Rúnar Alex Rúnarsson er varamarkvörður liðsins en hann hefur fengið tækifærið í síðustu þremur leikjum.
Athugasemdir