Fotbolti.net
30.04.09 - 08:37
Hafliði Breiðfjörð

Keflavík búið að semja við Sutej og Jörgensen (Staðfest)

Sutej er hér vinstra megin og Jörgensen hægra megin. Á milli þeirra stendur Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga.

Sutej er hér vinstra megin og Jörgensen hægra megin. Á milli þeirra stendur Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga.

Canon

Mynd: Jón Örvar Arason

Keflavík staðfesti nú í morgun að félagið hafi gengið frá samningum við miðvörðinn Alan Sutej og markvörðinn Lasse Jörgensen.
Alen Sutej er 23 ára gamall slóvenskur varnarmaður sem hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga og lék með þeim æfingaleik við Víking um helgina þar sem hann þótti standa sig mjög vel.

Lase Jörgensen er 24 ára gamall markvörður sem æfði með liðinu í æfingaferðinni í Portúgal á dögunum og ákveðið var að semja við hann. Hann kemur til með að leysa stöðu Ómars Jóhannssonar sem verður frá út tímabilið vegna meiðsla og Magnúsar Þormar sem fór til Víkings í gær.

Báðir skrifuðu undir samninga við Keflavík sem gilda til loka þessa tímabils og ljóst að þeir munu styrkja Keflavíkur liðið mikið fyrir baráttuna í Pepsi-deildinni í sumar.

Auk þeirra hefur Keflavík fengið tvo aðra leikmenn til liðs við sig frá því síðustu leiktíð lauk, áður hafði Haukur Ingi Guðnason komið frá Fylki og Bjarni Hólm Aðalsteinsson frá ÍBV. Liðið verður án átta leikmanna frá síðustu leiktíð sem ýmist eru farnir í önnur lið eða meiddir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.