Fotbolti.net
30.04.09 - 19:01
Hafliði Breiðfjörð

Rut og Berglind Bjarnadætur í KR (Staðfest)

Berglind Bjarnadóttir í leik með HK/Víkingi.

Berglind Bjarnadóttir í leik með HK/Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Systurnar Rut og Berglind Bjarnadætur hafa verið lánaðar frá HK/Víking til KR og eru þegar komnar með leikheimild hjá sínu nýja félagi.
Rut Bjarnadóttir er 26 ára gömul og spilar á hægri kanti eða í framlínunni. Hún lék alla 18 leiki HK/Víkings í Landsbankadeild kvenna síðasta sumar en hefur einnig leikið áður með Val.

Hún á samtals að baki 77 leiki í deild og bikar frá því hún hóf meistaraflokksferilinn hjá Val árið 2002 og hefur skorað í þeim 22 mörk.

Berglind Bjarnadóttir er 19 ára gamall varnarmaður. Hún lék einnig alla 18 leiki HK/Víkings í Landsbankadeildinni síðasta sumar og skoraði í þeim 4 mörk.

Hún hefur samtals leikið 34 leiki í deild og bikar með meistaraflokki, alla með HK/Víking. Hún hóf meistaraflokksferilinn árið 2006 og hefur síðan þá skorað 13 mörk.

Hún var í leikmannahópi U19 ára landsliðs kvenna sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.