Fotbolti.net
30.04.09 - 20:02
Hafliði Breiðfjörð

Morten Smidt í Þrótt (Staðfest)

Þróttarar fengu annan framherjann á tveimur dögum.

Þróttarar fengu annan framherjann á tveimur dögum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Þróttur hefur gengið frá samningum við danska framherjann Morten Smidt sem hefur æft með liðinu upp á síðkastið en þetta kom fram á vef stuðningsmanna félagsins, Köttarar.net.
Smidt sem mun klæðast treyju númer 10 hjá Þrótti lék æfingaleik með liðinu gegn ÍA á dögunum og skoraði glæsilegt mark í leiknum.

Hann kemur frá danska félagin Esbjerg en áður hafði Oddur Ingi Guðmundsson komið til Þróttar frá sama félagi í vetur.

Hann skoraði 15 mörk í 31 leik með varaliði Esbjerg en hafði áður skorað 57 mörk í 83 leikjum með yngri liðum félagsins.

Hann kemur til landsins um helgina og verður löglegur með liðinu í fyrsta leik Pepsi-deildarinnar gegn Breiðablik í Kópavogi 10. maí.

Hann er annar framherjinn sem kemur til félagsins á tveimur dögum því í gær kom Davíð Þór Rúnarsson frá Fjölni.

Heimild: Köttarar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.