30.04.09 - 20:14
Hafliði Breiðfjörð
Boban Jovic og Aron Bjarki í Völsung (Staðfest)

Aron Bjarki var hjá KR í vetur en er kominn aftur í Völsung.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Aron Bjarki var hjá KR í vetur en er kominn aftur í Völsung.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Völsungur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í 3. deildinni næsta sumar því Boban Jovic og Aron Bjarki Jósepsson eru komnir aftur til félagsins frá Selfossi og KR. Frá þessu var greint á fréttavefnum 640.is.
Boban Jovic lék með Völsungi frá 2001 - 2007 en gekk til liðs við Selfoss fyrir síðustu leiktíð og lék þar við góðan orðstýr síðasta sumar.
Aron Bjarki Jósepsson ákvað að söðla um í vetur og gekk í raðir KR þar sem hann var í allan vetur.
Hann hefur nú ákveðið að snúa aftur heim og leika með Völsungi í þriðju deildinni á komandi sumri.
Aron Bjarki Jósepsson ákvað að söðla um í vetur og gekk í raðir KR þar sem hann var í allan vetur.
Hann hefur nú ákveðið að snúa aftur heim og leika með Völsungi í þriðju deildinni á komandi sumri.
Heimild: 640.is
