Fotbolti.net
30.04.12 - 12:09
Magnús Már Einarsson

Lukas Podolski til Arsenal (Staðfest)

Lukas Podolski til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Lukas Podolski, framherji Köln, mun ganga til liðs við Arsenal í sumar en þýska félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag.

Félagaskiptin hafa legið í loftinu í marga mánuði og nú er staðfest að Podolski mun fara til Englands í sumar.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Podolski var samningsbundinn Köln til ársins 2013.

,,Þessi félagaskipti til Arsenal gefa mér frábært tækifæri til að fá reynslu í alþjóðlegum keppnum hjá toppfélagi í Evrópu,\" sagði Podolski.

,,Þetta var alls ekki auðveld ákvörðun fyrir mig því Köln, stuðningsmennirnir og borgin skipa sérstakan sess hjá mér.\"

Hinn 26 ára gamli Podolski er uppalinn hjá Köln og hefur leikið allan sinn feril með félaginu fyrir utan tíma sinn hjá FC Bayern frá 2006-2009.

Heimild: Heimasíða Köln

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.