Fotbolti.net
30.04.12 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Mustapha Cisse í Selfoss (Staðfest)

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar hafa samið við senegalska sóknarmanninn Mustapha Cissé en þetta kemur fram á sunnlenska.is.
Cissé er 21 árs gamall sóknarmaður og kemur frá Jeanne d\'Arc Dakar sem leikur í efstu deild í Senegal.

Fyrir tveimur árum lék hann með Løv-Ham í norsku 1. deildinni en meiddist þar og fór aftur til Senegal. Hann hefur leikið einn A-landsleik fyrir þjóð sína með liði sem skipað var leikmönnum sem spila með liðum í Senegal.

Cissé hefur verið til reynslu hjá Selfyssingum síðustu vikur og staðið sig vel. Hann skoraði til að mynda eitt mark og lagði upp annað í æfingaleik gegn Leikni á dögunum.

Þrír Senegalar verða á mála hjá Selfyssingum í sumar en miðjumaðurinn öflugi Babacar Sarr verður áfram hjá liðinu auk þess sem búið er að semja við annan framherja að nafni Abdoulaye Ndiaye.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.