Fotbolti.net
30.05.09 - 14:40
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Hernan Crespo til Genoa (Staðfest)

Hernan Crespo

Hernan Crespo

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Genoa sem leikur í efstu deild þar í landi hefur fengið argentíska snillinginn Hernan Crespo til félagsins frá Inter Milan.
Crespo, sem er 33 ára gamall framherji gerir tveggja ára samning við félagið samkvæmt umboðsmanni leikmannsins, en hann var að fá lítinn leiktíma hjá ítölsku meisturunum í Inter á þessu tímabili þar sem hann var á eftir Zlatan Ibrahimovic, Mario Balotelli og Adriano í goggunarröðinni.

Hann átti aðeins einn mánuð eftir samning sínum við Inter og ákvað því að leita annað í von um að spila meira.

Hann hefur verið talinn einn af bestu framherjum heimsins á síðasta áratugnum, þar sem hann lék með Parma, Lazio, Inter, Chelsea og AC Milan. Hann hefur þá skorað 243 mörk í 493 leikjum.

Hann hefur á leikið 66 landsleiki með Argentínu og skorað 36 mörk, en hann er annar markahæsti leikmaður landsliðins á eftir Gabriel Batistuta sem er með 56 mörk. Goðsögnin Diego Armando Maradona kemur svo þriðji með 34 mörk.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.