30.07.08 - 12:10
Magnús Már Einarsson
Andri Júlíusson á láni til KA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
KA úr fyrstu deild karla hefur fengið framherjann Andra Júlíusson frá ÍA á láni út tímabilið.
,,Hann er ekki fastamaður í liðinu og við erum í raun með nóg af framherjum í liðinu. Við hefðum verið til í að halda honum en hans vegna var þetta besta lausnin, að fá að spila og öðlast reynslu,\" sagði Bjarki Bergmann Gunnlaugsson þjálfari ÍA við Fótbolta.net í dag.
Andri er uppalinn Skagamaður en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki sumarið 2005.
Í sumar hefur Andri leikið þrettán leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark með Skagamönnum.
Andri, sem er 23 ára, skoraði tvö mörk í sextán leikjum í Landsbankadeildinni í fyrra.