30.07.08 - 17:12
Magnús Már Einarsson
Fredrik Stoor til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hefur keypt varnarmanninn Fredrik Stoor frá Rosenborg fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra samning við Fulham.
,,Fredrik er leikmaður sem ég hef fylgst með í þónokkurn tíma í sænska landsliðinu,\" sagði Roy Hodgson stjóri Fulham.
Stoor á átta landsleiki að baki með Svíum en hann lék með liðinu á EM.
Fulham hefur fengið átta leikmenn til liðs við sig í sumar en Andy Johnson, framherji Everton, gæti bæst í hópinn á næstunni.

Heimild: BBC