Fotbolti.net
30.07.08 - 13:22
Magnús Már Einarsson

Skúli Jónsson í Víking R. á láni (Staðfest)

Skúli í leik með Þrótti í fyrra.

Skúli í leik með Þrótti í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingur Reykjavík úr fyrstu deild hefur fengið Skúla Jónsson á láni frá KR út tímabilið.
Skúli getur leikið bæði á miðjunni og í fremstu víglínu en hann er uppalinn hjá KR.

Í fyrra var Skúli á láni hjá Þrótti í fyrstu deildinni. Í sumar hefur hann verið í leikmannahópi KR en fengið fá tækifæri.

Alls hefur Skúli leikið einn leik í sumar en það var í VISA-bikarnum gegn Fram.

Hjá Víkingi hittir Skúli fyrir jafnaldra sinn Brynjar Orra Bjarnason en hann er einnig í láni frá KR.

Heimild: KRReykjavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.