Fotbolti.net
30.07.08 - 14:39
Magnús Már Einarsson

Ingimundur Níels Óskarsson í Fylki (Staðfest)

Ingimundur Níels Óskarsson í búningi Fylkis.

Ingimundur Níels Óskarsson í búningi Fylkis.

Canon

Mynd: Einar Ásgeirsson

Fylkismenn hafa fengið Ingimund Níels Óskarsson frá KR en hann hefur gert þriggja ára samning við Árbæjarfélagið.
Þessi 22 ára gamli leikmaður þekkir til hjá Fylki því hann lék með öðrum flokki félagsins árið 2004.

,,Ingimundur er á svipuðum aldri og stór kjarni í mínum hópi og hann þekkir þessa stráka vel,\" sagði Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis við Fótbolta.net í dag.

,,Við erum ekki að taka einhverja menn til að leika okkur að því. Ég hef mikla trú á honum og að hann geti bætt okkar hóp,\" bætti Leifur við.

Ingimundur kom til KR frá Fjölni fyrir tveimur árum eftir að hafa leikið með Grafarvogsliðinu í fyrstu deildinni 2005 og 2006.

Í sumar hefur hann skorað eitt mark í sjö leikjum í Landsbankadeildinni og auk þess leikið tvo leiki með KR í VISA-bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.