30.07.08 - 15:30
Hafliði Breiðfjörð
Ben Haim til Manchester City (Staðfest)

Ben Haim.

Mynd: Getty Images

Ben Haim.

Mynd: Getty Images
Manchester City staðfesti á vefsíðu sinni í dag að ísraelski landsliðsmaðurinn Tal Ben Haim er genginn í raðir félagsins frá Chelsea.
Kaupverðið var ekki gefið upp en skiptin ganga í gegn að því gefnu að Ben Haim fái atvinnuleyfi á Englandi.
Ben Haim er 26 ára gamall fyrrverandi leikmaður Bolton Wanderers. Hann gerir fjögurra ára samning við Manchester City og er annar leikmaðurinn sem félagið fær í sínar raðir í kjölfar ráðningar á Mark Hughes sem stjóra liðsins.
Ben Haim er annar Ísraelinn til að spila með Manchester City, fylgir í fótspor Eyal Berkovic sem var í miklum metum hjá félaginu.

Heimild: Opinber vefsíða Manchester City