Fotbolti.net
30.07.08 - 17:08
Hafliði Breiðfjörð

Bernando Corradi til Emils og félaga í Reggina (Staðfest)

Bernando Corradi.

Bernando Corradi.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City staðfesti á vefsíðu sinni í dag að framherjinn Bernando Corradi sé hættur hjá félaginu og genginn í raðir Reggina sem leikur í Serie A á Ítalíu. Þar hittir hann fyrir íslenska landsliðsmanninn Emil Hallfreðsson sem gekk í raðir Reggina síðasta sumar.
Corradi er 32 ára gamall Ítali. Hann gekk í raðir Manchester City frá Valencia fyrir tveimur árum en náði aldrei að sanna sig á Englandi.

Hann var rekinn af velli í sínum fyrsta leik fyrir félagið gegn Chelsea og skoraði aðeins þrjú mörk í 29 leikjum í deild og bikar.

Corradi var á síðustu leiktíð á láni hjá Parma þar sem hann bar í mörg skipti fyrirliðabandið.

Hann fer hinsvegar núna til suður Ítalíu þar sem hann gengur í raðir Reggina sem endaði í 16. sæti Serie A á síðustu leiktíð.

Heimild: Opinber vefsíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.