Fotbolti.net
30.07.08 - 18:03
Eyþór Ernir Oddsson

Arsenal fá portúgalskan miðjumann (Staðfest)

Arsenal fá portúgalskan miðjumann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska félagið Arsenal staðfesti í dag á heimasíðu sinni að félagið hafi gengið frá kaupum og kjörum á portúgalska miðjumanninum Amaury Bischoff, sem leikur með Werder Bremen.

Bischoff getur leikið bæði á hægri kanti sem og á miðri miðjunni. Hann á að baki einn leik fyrir aðallið Werder Bremen en sá leikur var gegn Celta Vigo í Evrópukeppni félagsliða árið 2007.

Amaury, sem er fæddur í Frakklandi hefur leikið með franska undir 18 ára landsliðinu en ákvað árið 2007 að æfa með því portúgalska og hefur leikið með U-21 árs liði þeirra. Hann mun koma til með að klæðast treyju númer 28 hjá Arsenal.

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.