30.07.08 - 23:19
Gunnar Gunnarsson
David Bentley genginn í raðir Tottenham (Staðfest)

David Bentley er kominn til Tottenham

Mynd: Getty Images

David Bentley er kominn til Tottenham

Mynd: Getty Images
Tottenham hafa formlega staðfest kaup sín á miðjumanni Blackburn, David Bentley. Hinn 23 ára gamli Bentley verður formlega kynntur sem nýr liðsmaður Lundúnaliðsins á morgun á blaðamannafundi. Ekki liggur fyrir hvert kaupverðið er á þessum snjalla leikmanni sem leikið hefur þrjá landsleiki fyrir enska landsliðið.
David Bentley tókst að skora 21 mark í 133 leikjum fyrir Blackburn síðan hann gekk til þeirra frá Arsenal fyrir þremur árum. En nú er staðfest að hann mun snúa aftur til London en bæði Tottenham og Blackburn tilkynntu um vistaskipti kappans nú rétt í þessu.
Framtíð Bentley á Ewood Park var í mikilli óvissu eftir frábært leiktímabil undir stjórn Mark Hughes. En þjálfarinn yfirgaf Blackburn í sumar til þess að ganga til liðs við Manchester City og hefur David Bentley einnig ákveðið að róa á ný mið.
David Bentley er fimmti leikmaðurinn sem Tottenham festir kaup á nú í sumar en hinn króatíski, Luka Modric og hinn bráðefnilegi Giovani Dos Santos höfðu áður skrifað undir samning á White Hart Lane auk markmannsins Gomes frá PSV Eindhoven og hins unga John Bostock frá Crystal Palace.

Heimild: Goal.com