Fotbolti.net
30.08.08 - 09:56
Magnús Már Einarsson

Ebi Smolarek til Bolton á láni (Staðfest)

Ebi Smolarek til Bolton á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur fengið pólska framherjann Ebi Smolarek á láni frá Racing Santander út tímabilið.
Bolton hefur einnig möguleika á að kaupa þennan 27 ára gamla leikmann ef hann stendur sig vel í vetur.

Smolarek hefur á ferli sínum einnig leikið með Borussia Dortmund í Þýskalandi og Feyenoord í Hollandi.

Smolarek ólst upp í Hollandi en hann hefur verið valinn besti leikmaðurinn í Póllandi undanfarin ár.

Hann náði sér ekki á strik á EM í sumar en hefur þrátt fyrir það skorað alls þrettán mörk í 34 landsleikjum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.