30.08.08 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Dickson Etuhu til Fulham (Staðfest)

Etuhu í leik með Norwich á sínum tíma.

Mynd: Getty Images

Etuhu í leik með Norwich á sínum tíma.

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið til sín nígeríska miðvallarleikmaninn Dickson Etuhu frá Sunderland.
Etuhu, sem er 26 ára gamall skrifar undir þriggja ára samning við Lundúnarliðið en kaupverðið er óvíst.
Hann spilaði 20 leiki með Sunderland á síðustu leiktíð, en meiddist um apríl mánuð og var frá út tímabilið.
Roy Hodgson, stjóri Fulham hefur verið duglegur að styrkja liðið sitt í sumar og lofar það góðu, en liðið vann Arsenal í síðustu helgi í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Heimild: Sky