30.08.10 - 19:24
Magnús Már Einarsson
Zaccheroni tekur við landsliði Japan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Alberto Zaccheroni, fyrrum þjálfari Juventus og AC Milan, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari hjá Japan.
Zaccheoni, sem er 57 ára, tekur við liðinu af Takeshi Okada sem hætti eftir að hafa komið Japönum í 16-liða úrslit á HM í sumar.
Zaccheroni verður fyrsti Ítalinn til að þjálfa japanska landsliðið en alls hafa sex erlendir þjálfarar stýrt liðinu í gegnum tíðina.
Fyrsti leikur Japana undir stjórn Zaccheroni verður vináttuleikur gegn Paragvæ á laugardag.

Heimild: AP