Fotbolti.net
30.08.10 - 20:18
Magnús Már Einarsson

Jan Vennegoor of Hesselink til Rapid Vín (Staðfest)

Jan Vennegoor of Hesselink til Rapid Vín (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski framherjinn, Jan Vennegoor of Hesselink, hefur gengið til liðs við Rapid Vín í Austurríki.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur verið án félags síðan samningur hans við Hull rann út í sumar.

Vennegoor of Hesselink, sem er með eitt lengsta nafnið í fótboltaheiminum, lék með Twente, PSV Eindhoven og Celtic áður en hann gekk til liðs við Hull í fyrra.

Hjá Rapid Vín fær Hesselink það hlutverk að leysa króatíska framherjann Nikica Jelavic af hólmi en hann fór til Rangers í síðustu viku.

Rapid Vín er á leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en liðið sló Aston Villa út í síðustu viku.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.