Fotbolti.net
30.08.10 - 17:48
Magnús Már Einarsson

Javier Mascherano til Barcelona (Staðfest)

Javier Mascherano til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur keypt argentínska miðjumanninn Javier Mascherano frá Liverpool á 17,25 milljónir punda.
Þessi 26 ára gamli Argentínumaður fór í fimm tíma læknisskoðun hjá Barcelona í dag og nú er búið að ganga formlega frá samningum.

Ljóst var fyrr í sumar að Mascherano vildi fara frá Liverpool og nú hefur það orðið að veruleika.

,,Sannleikurinn er sá að þetta er draumur og mikil gleði,\" sagði Mascherano.

,,Þetta er frábært félag með frábæra leikmenn og ég mun reyna að aðlagast eins fljótt og ég get.\"

Liverpool keypti Mascherano frá West Ham á 18 milljónir punda árið 2007.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.