30.08.10 - 21:47
Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson til AGF (Staðfest)

Aron Jóhannsson er farinn til AGF í Danmörku.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Fjölnir og danska 1. deildarfélagið AGF hafa náð samkomulagi um félagsskipti Arons Jóhannssonar frá Fjölni til AGF en þetta kom fram í yfirlýsingu frá Fjölni nú í kvöld.
Samkomulag milli félaganna náðist síðdegis og er það tvíþætt. Annars vegar kemur til peningagreiðsla fyrir leikmanninn og einnig hafa félögin samið um samstarf sín á milli sem Fjölnir sér í mikil tækifæri fyrir félagið til frambúðar. Aron á eftir að semja um kaup og kjör við nýtt félag og standa þær viðræður nú yfir.
Aron Jóhannsson er fæddur 1990 og er markahæsti leikmaður 1. deildar karla með 12 mörk í 18 leikjum. Hann hefur æft og leikið með Fjölni upp alla yngri flokka félagsins. Aron er gríðarlega efnilegur knattspyrnumaður og um leið og gaman verður að sjá hvernig honum gengur í dönsku deildinni, verður hans sárt saknað í Grafarvogi.
AGF er búið að fylgjast grannt með Aroni um nokkura vikna skeið en félögin hafa ekki náð saman um félagsskiptin fyrr en í kvöld.
,,Aroni fylgja góðar óskir frá knattspyrnudeild, meistaraflokksráði og starfsfólki Fjölnis með von um gott gengi með nýju félagi. Aron hefur verið afar öflugur liðsmaður og það verður alltaf pláss fyrir hann í Grafarvogi, kjósi hann síðar að snúa aftur,\" sagði í yfirlýsingu knattspyrnudeildar Fjölnis.