Fotbolti.net
30.10.08 - 19:47
Hörður Snævar Jónsson
Ítalska deildin

David Beckham á láni til AC Milan (Staðfest)

David Beckham á láni til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur staðfest að félagið muni fá David Beckham leikmann LA Galaxy og enska landsliðsins í janúar.
Beckham mun ganga í raðir AC Milan þann 7 janúar en umboðsmaður Beckham hefur verið í viðræðum við AC Milan í dag.

Beckham vill halda sér í formi fyrir enska landsliðið en MLS deildin er í löngu fríi en Beckham mun að líkindum snúa aftur til LA Galaxy í mars.

,,Milan hafa fengið góðan leikmann,\" sagði Fabio Capello þjálfari enska landsliðsins og fyrrum þjálfari Milan.

,,Þegar ég var með hann hjá Madrid þá setti ég hann úr hópnum því hann hafði skrifað undir samning við Los Angeles en hann hélt áfram að koma á völlinn og æfði og ég setti hann aftur í liðið.\"

,,Hann er mjög alvarlegur, hefur tilfinnigar og er atvinnumaður. Fólk heldur að hann sé söluvara bara en það er alls ekki satt.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.