30.11.09 - 12:50
Magnús Már Einarsson
Veigar Páll Gunnarsson til Stabæk (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Veigar Páll Gunnarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Stabæk en hann kemur til félagsins frá Nancy í Frakklandi.
Veigar Páll var kynntur til sögunnar á fréttamannafundi hjá Stabæk núna í hádeginu.
Þessi 29 ára gamli leikmaður lék frábærlega með Stabæk þegar að liðið varð norskur meistari í fyrra en í kjölfarið keypti Nancy hann.
Í Frakklandi fékk Veigar afar fá tækifæri og því er hann ánægður með að vera kominn aftur til Stabæk.
Veigar er í miklum metum hjá Stabæk en hann myndaði eitrað framherjapar með Daniel Nannskog hjá liðinu.
Árið 2008 skoruðu þeir félagar samanlagt 26 mörk og árið áður 34 mörk en spennandi verður að sjá hvernig þeim vegnar á næsta tímabili.

Heimild: Dagbladet