Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. nóvember 2020 19:01
Victor Pálsson
Byrjunarlið West Ham og Aston Villa: Antonio snýr aftur
Mynd: Getty Images
Það er tæplega klukkutími í að síðasti leikur umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni hefjist en leikið er á heimavelli West Ham í London.

Aston Villa kemur í heimsókn í leik kvöldsins en það lið er til alls líklegt eftir nokkur óvænt úrslit fyrr á tímabilinu.

Villa tapaði síðasta leik sínum óvænt 2-1 heima gegn Brighton en vann fyrir það Arsenal 0-3 á útivelli.

West Ham hefur á sama tíma unnið síðustu tvo leiki sína 1-0 gegn Fulham og svo Sheffield United.

Góðu fréttirnar fyrir heimamenn eru þær að Michail Antonio er heill heilsu og snýr aftur í byrjunarliðið eftir meiðsli.

Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.

West Ham: Fabianski; Cresswell, Ogbonna, Balbuena; Masuaku, Soucek, Rice, Coufal; Fornals, Antonio, Bowen

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Trezeguet, Hourihane, Grealish, Watkins
Athugasemdir
banner
banner
banner