31.01.25 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Mario Hermoso lánaður til Þýskalandsmeistaranna (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Roma hefur lánað varnarmanninn Mario Hermoso til Bayer Leverkusen út tímabilið. Engin sérstök ákvæði eru um framtíðarkaup.
Þýskalandsmeistararnir staðfestu komu Hermoso í morgun.
Þýskalandsmeistararnir staðfestu komu Hermoso í morgun.
Hermoso er 29 ára reynslumikill spænskur miðvörður sem einnig getur leikið sem vinstri bakvörður.
„Mario kemur með meiri breidd í varnarleikinn okkar," segir Simon Rolfes, yfirmaður fótboltamála hjá Leverkusen.
Roma krækti í Hermoso á frjálsri sölu síðasta sumar eftir að samningur hans við Atlético Madrid rann út. Hermoso gerði þriggja ára samning við Roma en hefur ekki náð að tryggja sér fast sæti í byrjunarliðinu.

Welcome to #Bayer04, Mario Hermoso! ???????????? pic.twitter.com/YskcIfY0Or
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) January 31, 2025
Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 9 | +20 | 21 |
| 2 | Dortmund | 9 | +9 | 21 |
| 3 | Freiburg | 9 | +10 | 19 |
| 4 | RB Leipzig | 9 | +14 | 18 |
| 5 | Leverkusen | 9 | +3 | 16 |
| 6 | Werder | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Elversberg | 9 | -1 | 13 |
| 8 | Stuttgart | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Hoffenheim | 9 | -1 | 12 |
| 10 | Frankfurt | 9 | -5 | 12 |
| 11 | Hamburger | 9 | -10 | 12 |
| 12 | Mainz | 9 | -1 | 10 |
| 13 | Paderborn | 9 | -3 | 10 |
| 14 | Augsburg | 9 | 0 | 9 |
| 15 | Köln | 9 | -4 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 9 | -14 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 9 | -6 | 6 |
| 18 | Gladbach | 9 | -13 | 4 |