Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
banner
laugardagur 27. apríl
Besta-deild kvenna
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
fimmtudagur 25. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
fös 31.mar 2023 20:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Fyrsta æfingin var hjá Frikka Dór í 8. flokki

Logi Hrafn Róbertsson byrjaði að spila fótbolta með FH þegar hann var í 8. flokki. Núna er hann lykilmaður í meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall. Logi Hrafn er einn mest spennandi leikmaður landsins en hann spilaði stóra rullu í því að U19 landsliðið komst á lokakeppni Evrópumótsins á dögunum. Logi er spenntur fyrir sumrinu þar sem hann mun leika stórt hlutverk í félagsliði og landsliði.

Logi Hrafn í leik með FH í fyrra.
Logi Hrafn í leik með FH í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór á vellinum.
Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór á vellinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á ferðinni.
Á ferðinni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Viðarsson.
Davíð Þór Viðarsson.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Casemiro.
Casemiro.
Mynd/Getty Images
Toni Kroos.
Toni Kroos.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi hefur verið hjá FH allan sinn fótboltaferil.
Logi hefur verið hjá FH allan sinn fótboltaferil.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson stýrðu FH seinni hluta síðasta sumars.
Eiður Smári Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson stýrðu FH seinni hluta síðasta sumars.
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Ein gömul og góð. Ólafur Jóhannesson og Heimir Guðjónsson.
Ein gömul og góð. Ólafur Jóhannesson og Heimir Guðjónsson.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Logi er bæði í U21 og U19 landsliðinu.
Logi er bæði í U21 og U19 landsliðinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Steinn Óskarsson var markahæstur í undankeppninni.
Orri Steinn Óskarsson var markahæstur í undankeppninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hulda Margrét
Fyrir leik á undirbúningstímabilinu.
Fyrir leik á undirbúningstímabilinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það væri draumur að ná að vinna titil með FH, eitthvað sem mig hefur dreymt um síðan ég byrjaði að mæta á leiki þar sem ég sjá liðið lyfta öllum þessum bikurum'
'Það væri draumur að ná að vinna titil með FH, eitthvað sem mig hefur dreymt um síðan ég byrjaði að mæta á leiki þar sem ég sjá liðið lyfta öllum þessum bikurum'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður vel í báðum stöðum. Ég hef aðallega verið að spila á miðjunni með FH í vetur og er mjög ánægður með það. Það er gott að spila hafsent með landsliðinu og viðhalda því að leysa þá stöðu. Ég tel það vera góðan eiginleika að geta leyst báðar stöður. Ég myndi lýsa mér sem leikmanni með góðan leikskilning sem líður vel á boltanum, með góðar sendingar og staðsetningar," segir Logi Hrafn í samtali við Fótbolta.net er hann er beðinn um að lýsa sér sem leikmanni fyrir einhverjum sem hefur ekki séð hann spila fótbolta.

Logi kemur til með að spila sem miðjumaður í liði FH í sumar, en hann getur einnig leyst stöðu hafsentar. Hann er einn af þeim leikmönnum sem verður hvað mest spennandi að fylgjast með í Bestu deildinni í sumar. Meðfram fótboltanum er hann að klára stúdentspróf í Flensborg en hann stefnir svo á að fara í háskólanám síðar meir.

Friðrik Dór var fyrsti þjálfarinn
Logi hefur alltaf verið leikmaður FH. Hann hóf sinn feril í Kaplakrika á barnsaldri. Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson var fyrsti þjálfari Loga í Hafnarfirðinum.

„Þetta var auðvitað búið að vera draumur síðan maður mætti á fyrstu æfinguna í 8. flokki."

„Ég var 5 ára þegar ég mætti á fyrstu æfinguna mína með FH. Þá var Frikki Dór að þjálfa áttunda flokk sem var ekki verra. Fyrsta minningin sem ég man eftir var líklega Norðurálsmótið. Það eru skemmtilegustu minningarnar sem maður man eftir, öll þessi mót," segir Logi Hrafn.

Hann kom inn í meistaraflokkinn hjá FH mjög ungur að árum og spilaði sína fyrstu leiki þegar hann var aðeins 15 ára.

„Á þessum tíma var ég búinn að vera í hóp í nokkrum leikjum áður. Ég var ekki byrjaður að æfa neitt með liðinu og því kom það mér svolítið á óvart þegar ég átti að vera að koma inn á í fyrsta leiknum. Þetta var auðvitað búið að vera draumur síðan maður mætti á fyrstu æfinguna í 8. flokki, að fá að spila með meistaraflokknum. Ég viðurkenni það að ég pældi í raun og veru ekki alltof mikið í þessu, ég vara bara hrikalega stoltur og var ekkert að pæla í því hvað ég væri gamall eða hvort það væri einhver pressa á mér."

Hann segir að það hafi verið mikill heiður að koma inn í lið FH á þessum tíma. Hann spilaði sinn fyrsta leik í september 2019 er hann kom inn á sem varamaður í 6-4 sigri á ÍBV.

„Það var mikill heiður og ég er mjög þakklátur að fá tækifærið svona ungur. Það var mikil hvatning til þess að leggja enn meira á mig og sýna að ég ætti skilið að fá tækifæri svona ungur. Það var gríðarlega góð tilfinning að koma inn á og heyra stúkuna vera að klappa fyrir manni þegar vallarþulurinn las nafnið manns upp."

Hann segist á þessum tíma hafa litið mikið upp til Davíðs Þórs Viðarssonar, sem er mikil goðsögn hjá félaginu.

„Ég leit alltaf upp til Davíðs, hann var fyrirliði liðsins og var að spila sömu stöðu og ég. Ég man að í fyrsta skiptið sem ég var í hóp vorum við í 'possession' og ég var batti. Hann var duglegur að hrósa mér og ef ég gerði mistök þá fór hann strax að hughreysta mig. Ég kunni virkilega að meta það því ég var frekar stressaður þarna í fyrsta skiptið í hópnum."

Annars segir Logi: „Ég fylgist mikið með Casemiro og Toni Kroos í dag. Casemiro er virkilega góður í því sem hann gerir fyrir liðið. Staðsetningarnar hans í seinni boltum og hvernig hann les leikinn er eitthvað sem ég reyni að stúdera. Toni Kroos er fyrst og fremst frábær í einföldu hlutunum. Hann lætur leikinn tikka með stuttum einföldum sendingum og stjórnar tempóinu."

Síðasta tímabil ekki boðlegt
FH átti mjög erfitt tímabil í fyrra og bjargaði sér frá falli á markatölu. Fyrir félag eins og FH er það ekki boðlegt að sögn Loga Hrafns.

„Þetta er eitthvað sem er ekki í boði í félagi eins og FH."

„Það voru gríðarleg vonbrigði sérstaklega eftir að hafa spilað vel á undirbúningstímabilinu og verið með háleit markmið. Það var mjög þroskandi að upplifa svona tímabil. Maður lærir ýmislegt þegar maður er í svona stöðu og þetta er eitthvað sem maður setur í reynslubankann," segir Logi.

„Ég var mjög óheppinn með meiðsli og því var þetta mjög erfitt andlega; það var erfitt að vera upp í stúku og upplifa þetta þaðan og geta ekki lagt sitt að mörkum til þess að hjálpa liðinu í þeirri stöðu sem við vorum í. Þetta er eitthvað sem er ekki í boði í félagi eins og FH, og erum við staðráðnir í að bæta þetta upp fyrir stuðningsmönnum og fólki í kringum félagið í ár og á næstu árum."

Hvernig er staðan á Loga núna er varðar meiðsli? „Ég var óheppin með meiðsli á síðasta tímabili en ég hef náð að jafna mig alveg á þeim meiðslum og unnið í að fyrirbyggja frekari meiðsl. Vonandi næ ég að haldast heill í sumar og spila sem flesta leiki."

Logi er spenntur fyrir komandi leiktíð, en það er stutt í mót. Það er búist við því að hann verði í lykilhlutverki í sumar.

„Það er undir mér komið hversu stórt hlutverk ég fæ í sumar. Ég verð að standa mig vel í leikjum og á æfingum og leggja hart að mér. Ég hef fulla trú á því að ef ég geri það geti ég fengið stórt hlutverk og hjálpað liðinu að bæta upp fyrir tímabilið í fyrra."

„Ég er mjög spenntur fyrir komandi keppnistímabili. Hópurinn er orðinn mjög þéttur og nýir leikmenn hafa komið mjög vel inn. Veturinn er búinn að vera góður. Heimir og Venni hafa verið með mjög góðar æfingar. Deildin lítur vel út og ég er spenntur að byrja þessa veislu."

Unnið með goðsögnum
Logi hefur verið nokkra mismunandi þjálfara á ferli sínum hjá FH. Núna er hann með Heimi Guðjónsson sem er goðsögn hjá FH og í fyrra var hann með Ólaf Jóhannesson, sem er líka goðsögn hjá félaginu. Ólafur sagði að Logi væri einn efnilegasti leikmaðurinn sem hann hefði unnið með.

Þá hefur Logi einnig verið með Eið Smára Guðjohnsen, sem er mögulega besti fótboltamaður í sögu Íslands, tvisvar sem þjálfara á sínum unga ferli.

„Eiður Smári er mjög góður þjálfari. Hann hefur spilað á hæsta mögulega getustigi sem hægt er að komast á og því veit hann eitt og annað um fótbolta. Ég reyndi að hlusta á hvert einasta orð sem hann sagði þegar hann var með okkur og alltaf þegar hann tók mig til hliðar og var að leiðbeina mér vissi ég að það sem hann var að segja myndi virka. Ég er mjög þakklátur Eið þar sem að hann kenndi mér mikið á stuttum tíma," segir Logi en hann hefur líka fengið býsna góðan skóla hjá Óla og Heimi.

„Ég hef verið mjög heppin með þjálfara á mínum stutta ferli. Þetta eru allt þjálfarar sem hafa unnnið fullt af titlum og vita hvað þarf til þess að vinna. Ég held að ég væri ekki sá leikmaður sem ég er í dag ef það væri ekki fyrir þessa þjálfara og því er mjög þakklátur þeim öllum."

FH-ingar eru búnir að fá inn Atla Guðnason og Emil Pálsson, tvo fyrrum leikmenn félagsins, í sérstakt greiningarteymi sem mun aðstoða liðið í sumar.

„Þeir hafa komið vel inn í teymið. Emil var að spila sömu stöðu og ég þegar hann var að spila og því er mjög þæginlegt að hafa hann sem leikgreinanda því hann veit hvernig er að spila þessa stöðu og getur hjálpað mér að bæta hluti sem þarf að bæta og bent mér á hluti sem ég geri vel. Ég fékk að æfa með Atla í eitt tímabil og það er það sama með Atla og Eið Smára; þegar að Atli var að leiðbeina manni þá hlustaði maður því hann veit gríðarlega mikið um fótbolta og hvernig á að spila leikinn. Það er því mjög verðmætt að fá hann inn í teymið."

Það er það sem hefur komið okkur á lokamótið
Logi Hrafn er mikilvægur partur í U19 landsliðinu sem náði mjög merkilegum árangri á dögunum - liðið komst í lokakeppni Evrópumótsins. Í sumar fer Logi ásamt liðsfélögum sínum til Möltu þar sem þeir spila við bestu liðin í þessum aldursflokki á stórmóti.

„Það er gríðarlegur heiður að fá að spila með yngri landsliðunum, hvort sem það er U19 eða U21. Maður fær að æfa og spila með frábærum leikmönnum og vera í virkilega góðu og faglegu umhverfi sem KSÍ setur upp. Einnig fær maður reynslu á háu stig sem undirbýr mann til dæmsi undir atvinnumennsku," segir Logi.

Um að komast á inn á lokamótið segir hann: „Það var hrikalega gaman. Hópurinn er gríðarlega þéttur og stútfullur af gæða leikmönnum. Við vorum allir sammála um það að við værum með eitt markmið og að það væri að fara upp úr riðlinum. Við vissum allir að ef við myndum trúa á verkefnið og fylgja leikplani sem þjálfarateymið setti upp gætum við náð markmiðinu okkar. Við gerðum það og fengum það sem við áttum skilið."

U19 landsliðið er mjög sterkt og í liðinu eru leikmenn á borð við Kristian Nökkva Hlynsson og Orra Stein Óskarsson sem hafa verið í stórum akademíum í Evrópu.

„Við erum búnir að sanna það þegar að við erum á okkar degi getum við unnið þessi stóru lið og því verður mjög spennandi að taka þátt í þessu verkefni og vonandi gera góða hluti. Þetta er auðvitað góður gluggi fyrir leikmenn þar sem að menn fá að sýna sig en ég er fyrst og fremst að hugsa um liðið og að gera allt sem ég get svo okkur gangi vel. Orri og Kristian eru virkilega góðir leikmenn með mikil einstaklingsgæði sem geta klárað leiki sjálfir, en ég held að það sem einkennir liðið er sterk liðsheild, bárátta og samvinna milli leikmanna. Það er það sem hefur komið okkur á lokamótið."

Ég er pollrólegur yfir því
Það er í raun bara tímaspursmál hvenær Logi fer í atvinnumennsku en hann hefur farið víða á reynslu. Hann er þó ekkert að drífa sig, er pollrólegur.

„Það væri draumur að ná að vinna titil með FH."

„Ég er ekkert að stressa mig á því að komast út. Ég hef auðvitað þann draum að komast í atvinnumennsku en er pollrólegur yfir því. Ég er bara að einbeita mér að því að gera vel með FH í sumar og hjálpa liðinu," segir Logi.

„Það hefur verið áhugi frá ýmsum félögum en aldrei neitt sem hefur farið eitthvað lengra en það. Það væri auðvitað draumur að spila fyrir eitthvað stórt félag í enska boltanum en ég held að draumaliðið sé bara lið þar sem maður fær að spila mikið á góðu stigi og líður vel í."

Varðandi markmið sín í sumar segir Logi: „Ég stefni á að spila sem flesta leiki og spila á því stigi sem ég tel mig eiga að 'performa' á. Ég nefni það sama og það sem ég sagði um landsliðið, að ég mun gera hvað sem er svo að liðinu gangi vel og að við náum þeim markmiðum sem við setjum okkur."

„Við stefnum á að bæta upp fyrir tímabilið í fyrra, byggja upp liðið og stíga skref í átt að þeim stað sem félagið á að vera á. Við erum með sterkan hóp með fullt af góðum leikmönnum, frábæra þjálfara og stuðningsmenn. Það væri draumur að ná að vinna titil með FH, eitthvað sem mig hefur dreymt um síðan ég byrjaði að mæta á leiki þar sem ég sjá liðið lyfta öllum þessum bikurum."

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 7. sæti: FH
Athugasemdir
banner
banner