Þróttur Vogum hefur fengið fjóra leikmenn í sínar raðir fyrir komandi átök í 2. deild karla. Þróttarar rétt misstu af sæti í Lengjudeildinni í fyrra og er Auðun Helgason á leið í sitt annað tímabil með liðinu.
Sóknarmaðurinn Benóný Haraldsson kemur á láni frá Þrótti Reykjavík. Benóný er 21 árs og hefur spilað 34 leiki fyrir meistaraflokk Þróttar R. Hann spilaði fyrir ÍH 2022 og 2023.
Birgir Halldórsson, sem er 21 árs kantmaður, kemur á láni frá Þrótti Reykjavík til Þróttara annað árið í röð. Birgir hefur spilað 17 leiki fyrir Þrótt Reykjavík og á síðasta ári spilaði hann 19 leiki fyrir Þrótt Vogum.
Framarinn Hlynur Örn Andrason 19 ára kemur á láni frá Fram. Hlynur getur spilað í bakverði og á köntunum. Hlynur spilaði tvo leiki í Bestu deildinni á síðasta ári fyrir Fram og hefur spilað níu leiki fyrir meistaraflokk félagsins.
Að lokum er svo Joel Erik Svedberg kominn í Vogana. Hann er 19 ára markvörður sem ólst upp í Svíþjóð en spilaði fyrir alla yngri flokka FH yfir sumarið. Joel fór á láni frá FH á síðasta ári og kláraði tímabilið með Þorláki.
Athugasemdir





