31.05.09 - 17:14
Alexander Freyr Tamimi
Leonardo tekur við AC Milan (Staðfest)

Leonardo lék eitt sinn með brasilíska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Leonardo muni taka við félaginu af Carlo Ancelotti sem hefur stýrt liðinu undanfarin átta ár.
Ancelotti og Milan komust að samkomulagi um að rifta samningi Ítalans ári áður en hann rann út og mun hann líkast til taka við Chelsea.
Leonardo, sem hefur enga reynslu af þjálfun, hefur ekki enn fengið þau leyfi sem þarf til að stýra liði í efstu deild á Ítalíu en hann mun fara á þjálfaranámskeið hjá UEFA í sumar.
Brasilíumaðurinn hefur verið að vinna hjá Milan undanfarið sem íþrótttastjóri en pressan á honum mun aukast til muna þegar hann tekur við þjálfarastarfinu.
„Leonardo verður nýr þjálfari Milan. Hann verður formlega kynntur á morgun (mánudag) í hádeginu,“ sagði Adriano Galliani varaforseti félagsins.

Heimild: Sky