Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkasta lið 7. umferðar - Það var haldið partý
FH gerði sex mörk.
FH gerði sex mörk.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Líf Joostdóttir van Bemmel, leikmaður Breiðabliks.
Líf Joostdóttir van Bemmel, leikmaður Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfa Dís var maður leiksins í sigri Stjörnunnar.
Úlfa Dís var maður leiksins í sigri Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna lauk í gær. Það var heldur betur blásið til veislu í þessari umferð en alls voru skoruð 26 mörk í fimm leikjum.

Breiðablik svaraði því vel að hafa tapað gegn FH í síðustu umferð en þær fóru í Njarðvík og unnu þar 0-5 útisigur gegn nýliðunum í Grindavík/Njarðvík. Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík hafa leikið vel í upphafi móts og því voru þetta úrslit sem komu nokkuð á óvart.

Agla María Albertsdóttir var stórkostlegt í leiknum og hin efnilega Líf Joostdóttir van Bemmel átti einnig mjög góðan leik. Ian Jeffs er sterkasti þjálfari umferðarinnar eftir þennan sannfærandi sigur Blika.



FH-ingar ætla að veita Blikum alvöru baráttu á toppnum en FH lenti í smá vandræðum með Fram í gær. FH var 1-2 undir í hálfleik en sneru taflinu við í seinni hálfleik og unnu að lokum 6-2. Nia Christopher breytti leiknum en Ingibjörg Magnúsdóttir, 17 ára, var best annan leikinn í röð hjá FH. Hún virðist vera að springa út.

Víkingar fóru norður á Akureyri og unnu þar 6-4 sigur, hvorki meira né minna. Jasmín Erla Ingadóttir og Freyja Stefánsdóttir hafa verið að tengja vel í sóknarleiknum og þær voru bestar í þessum leik.

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir hefur farið hægt af stað í sumar en hún var maður leiksins í sigri Stjörnunnar gegn ÍBV í gær. Guðný Geirsdóttir var best hjá ÍBV í leiknum.

Þá vann Þróttur sigur á Val á föstudagskvöld. Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði sigurmarkið en Mist Funadóttir heldur áfram að spila vel og er í þriðja sinn í liði umferðarinnar í sumar.
Slapp
banner