31.07.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason
Thomas Sörensen til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Thomas Sörensen, markvörðurinn knái er genginn í raðir Stoke City á frjálsri sölu.
Stoke eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og þeir hafa verið að leita að markmanni í sumar og þeim hefur tekist að finna einn slíkan núna, því Sörensen samdi til þriggja ára við félagið.
Sörensen fór frá Aston Villa í sumar eftir að hafa misst stöðu sína sem aðalmarkvörður félagsins er Martin O\'Neill tók við stjórn þar á bæ.
Marton Fulop, markvörður úr Sunderland var einnig orðaður við Stoke og Sunderland hafði tekið tilboði Stoke í Fulop, en hann samþykkti ekki samning.

Heimild: Sky