Fotbolti.net
31.07.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Óli Steingrímsson í Völsung (Staðfest)

Guðmundur Óli í leik með Völsungi í fyrra.

Guðmundur Óli í leik með Völsungi í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hilmar V. Gunnarsson

Völsungur hefur fengið miðjumanninn Guðmund Óla Steingrímsson til liðs við sig frá KA.
Guðmundur Óli er uppalinn hjá Völsungi en í vetur gekk hann til liðs við KA.

Í sumar hefur Guðmundur Óli skorað þrjú mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni með KA.

Hann hefur hins vegar núna gengið aftur til liðs við sitt gamla félag Völsung og er kominn með leikheimild með liðinu.

Þrír bræður Guðmundar hafa leikið með Völsungi í sumar, þeir Hallgrímur Mar, Hrannar Björn og Sveinbjörn Már.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.