31.07.08 - 11:42
Magnús Már Einarsson
Calum Þór Bett í Hvöt (Staðfest)

Calum Þór Bett.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Calum Þór Bett.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Hvöt hefur fengið miðjumanninn Calum Þór Bett að láni frá HK út tímabilið.
Calum Þór skoraði eitt mark í fjórtán leikjum í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð en í ár hefur hann fengið færri tækifæri og einungis komið við sögu í tveimur leikjum.
Hvöt, sem leikur í annarri deild, mun missa tvo sterka leikmenn út í skóla í ágúst en þá munu Ragnar Heimir Gunnarsson og Ágúst Þór Ágústsson yfirgefa liðið.
Calum Þór kemur til með að hjálpa til að við að fylla skarð þeirra en Hvöt fékk einnig Alexander Fichera frá Bandaríkjunum fyrr í vikunni.
Þá hafa Atli Valsson og Eyþór Helgi Birgisson úr HK verið lánaðir í b-lið félagsins, Ými og munu leika í þriðju deildinni út tímabilið.
Báðir leikmennirnir eru einnig löglegir með öðrum flokki en í sumar hafa þeir komið við sögu í Landsbankadeildinni með HK. Atli hefur leikið fimm leiki þar og Eyþór Helgi tvo.