Fotbolti.net
31.07.08 - 12:13
Magnús Már Einarsson

Kristján Ari Halldórsson í ÍR á láni (Staðfest)

Kristján Ari í leik með ÍR sumarið 2006.

Kristján Ari í leik með ÍR sumarið 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR hefur fengið kantmanninn Kristján Ara Halldórsson á láni út tímabilið frá HK.
Kristján Ari er uppalinn ÍR-ingur en eftir að hafa skorað sex mörk í annarri deildinni árið 2006 gekk hann til liðs við HK.

Þessi 21 árs gamli leikmaður lék tíu leiki í Landsbankadeildinni með HK í fyrra.

Í ár hefur hann hins vegar ekkert getað leikið vegna meiðsla og nú er hann farinn í ÍR á láni.

ÍR-ingar eru langefstir í annarri deild karla en liðið hefur unnið þretttán leiki í sumar og gert eitt jafntefli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.