31.07.08 - 12:43
Magnús Már Einarsson
Guðni Rúnar Helgason í Stjörnuna (Staðfest)

Guðni Rúnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Guðni Rúnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Guðni Rúnar Helgason hefur gert samning við Stjörnuna út tímabilið en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
,,Það er mjög fínt að vera búinn að klára þetta og svo reynir maður bara að gera sitt besta fyrir nýja félagið,\" sagði Guðni við Fótbolta.net í dag
Guðni Rúnar yfirgaf Fylki fyrr í mánuðinum en hann fékk þá leyfi til að finna sér nýtt félag.
Hann hafði leikið átta leiki með Fylki í Landsbankadeildinni í sumar og skorað í þeim eitt mark. Auk þess lék hann með Fylki í VISA-bikarum.
Gunði er nýorðinn 32 ára gamall og hefur leikið með Fylki síðan árið 2004, ýmist í vörn eða á miðju. Samtals lék hann 64 leiki í Landsbankadeildinni með Fylki.
Hann hefur leikið með ÍBV, Völsungi og Val auk Fylkis hér á landi auk Start og Hönefoss í Noregi og Wattenscheid í Þýskalandi. Samtals hefur hann leikið 135 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 9 mörk.
Tveir leikmenn Stjörnunnar fara í ágúst út til Bandaríkjanna í skóla og missa þar með af lokasprettinum í fyrstu deildinni en það eru þeir Ellert Hreinsson og Kári Ársælsson.