31.07.08 - 14:15
Magnús Már Einarsson
Ivan Milenkovic og Rögnvaldur Már í Hamar (Staðfest)

Ivan Milenkovic.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hamar úr annarri deild hefur fengið tvo leikmenn til liðs við sig. Framherjinn Ivan Milenkovic er kominn til liðsins frá Víkingi R. og Rögnvaldur Már Helgason er kominn til Hamars frá Stjörnunni.
Ivan er 25 ára gamall framherji sem lék nokkra leiki með Afríku í þriðju deildinni árið 2006.
Í vetur kom hann inn í lið Víkings og hefur skorað eitt mark í fjórum leikjum í fyrstu deildinni í sumar.
Rögnvaldur Már, sem er tvítugur, er uppalinn hjá Stjörnunni en hann lék tvo leiki með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra. Árið 2006 lék hann þrjá leiki í fyrstu deildinni.
Báðir leikmennirnir munu styrkja lið Hamars en liðið er ellefta sæti í annarri deildinni með þrettán stig.