Fotbolti.net
31.07.08 - 15:10
Magnús Már Einarsson

Jens Elvar Sævarsson í Hvöt (Staðfest)

Jens Elvar Sævarsson í Hvöt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Hvöt úr annarri deild karla hefur fengið varnarmanninn Jens Elvar Sævarsson á láni frá Þrótti út tímabilið.
Jens Elvar hefur leikið tvo leiki í Landsbankadeildinni í sumar og einn leik í Visa-bikarnum.

Þessi 28 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Þrótti og hefur leikið með liðinu lengst af á sínum ferli.

Árið 2006 gekk Jens í raðir Fylkis en í fyrra var hann á láni hjá Fjarðabyggð og Þrótti. Hann gekk síðan alfarið aftur í raðir Þróttar í vor.

Jens er annar leikmaðurinn sem Hvöt fær í dag en félagið hefur einnig fengið Calum Þór Bett að láni út leiktíðina. Alexander Fichera, sem kom til Hvatar frá Bandaríkjunum í vikunni, þarf hins vegar að snúa heim til Bandaríkjanna sökum innflytjendamála.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.