Fotbolti.net
31.07.08 - 15:22
Magnús Már Einarsson

Höttur fær Frey Guðlaugsson á láni frá Fylki (Staðfest)

Freyr Guðlaugsson (lengst til hægri).

Freyr Guðlaugsson (lengst til hægri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafn Garðarsson

Höttur hefur fengið miðjumanninn Frey Guðlaugsson á láni frá Fylki út tímabilið.
Freyr þekkir vel til hjá Hetti því eftir að hafa leikið með Neista Djúpavogi lék hann með Huginn/Hetti á sínum fyrstu meistaraflokksárum.

Í kjölfarið fór þessi 24 ára gamli leikmaður til Þórs áður en hann gekk í raðir Fylkis haustið 2006.

,,Ég er ánægður með að vera kominn heim. Mamma mín á heima þarna, amma og afi og fullt af vinum mínum. Það verður gott að fara að spila leiki, ég hef verið meiddur í næstum eitt og hálft ár og núna þarf maður að fara að fá leiki,\" sagði Freyr við Fótbolta.net í dag.

Í sumar hefur Freyr ekki komið við sögu hjá Fylki en í fyrra lék hann einn leik með liðinu í Landsbankadeildinni og einn leik í Visa-bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.