31.07.08 - 15:34
Magnús Már Einarsson
Roberto Soldado frá Real Madrid til Getafe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Getafe hefur keypt framherjann Roberto Soldado frá Real Madrid.
Soldado, sem er 23 ára gamall, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Getafe en talið er að kaupverðið hljóði upp á fjórar milljónir evra.
,,Loksins náðist samkomulag við Getafe og ég er ánægður,\" sagði Soldado.
,,Eftir vonbrigðatímabil er ég mjög ánægður. Núna fæ ég nýja áskorun hjá Getafe,\" bætti Soldado við en hann lék einungis fimm leiki á síðasta tímabili.
Tímabilið 2006/2007 var Soldado í láni hjá Osasuna en á ferli sínum hjá Real Madrid skoraði hann tvö mörk í sextán leikjum.

Heimild: Reuters