Fotbolti.net
31.07.08 - 18:41
Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Atli Steinþórsson í KR (Staðfest)

Guðmundur Atli Steinþórsson.

Guðmundur Atli Steinþórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Atli Steinþórsson er genginn í raðir KR frá Fjarðabyggð og fær leikheimild með sínu nýja félagi frá og með morgundeginum. Hann yfirgefur Fjarðabyggð nú eftir að Magni Fannberg er hættur að þjálfa liðið og gengur í raðir KR.

Á vefsíðu stuðningsmanna KR, KRReykjavik.is kemur fram að Guðmundur Atli geri samning við KR út þetta tímabil.
Guðmundur Atli hefur verið hjá Fjarðabyggð síðan í febrúar sumarið 20007 en eftir að hafa skorað átta mörk í fjórum leikjum í Lengjubikarnum það árið ákváðu forráðamenn félagsins að semja við hann út tímabilið 2008.

Hann lék tíu leiki með Fjarðabyggð í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk auk þess sem hann skoraði þrjú mörk í tveimur bikarleikjum.

Hann er 21 árs gamall og hafði áður verið hjá Grindavík þar sem hann lék í Landsbankadeildinni sumarið 2006.

Áður lék hann með HK og BÍ en sumarið 2005 lék hann tvo leiki í fyrstu deildinni með Kópavogsfélaginu.

Hann getur leikið bæði á miðju og í fremstu víglínu.

Heimild: KRReykjavik.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.