Fotbolti.net
31.07.08 - 20:15
Magnús Már Einarsson

Geir Brynjólfsson í Víði (Staðfest)

Geir Brynjólfsson í Víði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víðir Garði úr annarri deild karla hefur fengið Geir Brynjólfsson til liðs við sig frá Val.
Geir getur leyst flest allar stöður á vellinum en hann hefur fimm sinnum verið í leikmannahópi Vals í Landsbankadeildinni í sumar.

Geir tók skóna af hillunni í vetur eftir að hafa verið í pásu frá fótbolta en þessi 32 ára gamli leikmaður lék með Selfyssingum í annarri deildinni árið 2003.

Árið 2001 lék hann með Valsmönnum í efstu deild en Geir hefur skorað fjögur mörk í 31 leik í efstu deild á ferlinum.

Víðismenn eru í þriðja sæti í annarri deildinni, þremur stigum frá öðru sætinu og kemur Geir til með að styrkja liðið í baráttunni sem er framundan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.